Kreditkort
Hvernig virkar kreditkort?
Greiðslukort þar sem bankinn lánar þér fyrir úttektum og rukkar allt í einu lagi mánaðarlega.
Dæmi
94.500 kr.
- Færslur í mánuðinum
- 12
- Gjalddagi
- 2. hvers mán.
Úttektir safnast saman
Hvað er þetta?
Kreditkort er í raun skammtímalán með úttektarheimild. Úttektir mánaðarins safnast upp og eru greiddar á einum gjalddaga. Sé greitt að fullu á réttum tíma eru yfirleitt engir vextir, aðeins árgjald. Sé aðeins greitt lágmark eða dreift á raðgreiðslur byrja vextir að tikka og þeir eru meðal þeirra hæstu sem bjóðast einstaklingum.
Raundæmi
Þú safnar 250.000 kr. úttekt í mánuðinum. Greiðirðu hana að fullu á gjalddaga borgarðu 0 kr. í vexti. Greiðirðu 50.000 kr. og lætur afganginn standa á 24% vöxtum kostar það um 4.000 kr. í vexti þann mánuðinn einan.
Hvað þýðir þetta fyrir mig?
Kreditkort er gagnlegt tæki ef þú greiðir alltaf upp í hverjum mánuði. Um leið og staðan flyst milli mánaða er kortið orðið eitt dýrasta lán sem þú getur verið með.
Tengd hugtök
Þessi reiknivél er til fróðleiks og telst ekki fjármálaráðgjöf. Niðurstöður byggja alfarið á þeim forsendum sem þú slærð inn.
